Forsíða
Gestabók
Bókaðu Bandið
Sagan
Myndir
Skást of
Ríđa feitum hesti
Hrútleiðinlegir
Út úr kú
sendu okkur póst

 

Hvanndalsbræður eru:
Valur Hvanndal
Sumarliði Hvanndal
Pétur Hvanndal
Valmar Hvanndal

 

Næstu gigg 2009:
11. júlí - Landsmót Akureyri
30. júlí - Græni Hatturinn
6. ágúst - Víkurröst Dalvík
8. ágúst - Fiskidagurinn mikli
21. ágúst - Ormsteiti Egilsstöðum


Tenglar:
Hvanndals á Facebook
Hvanndalsbræður á myspace.com

 

Vefsíðugerð: KIP Hvanndal


8. júní 2009 - Rögnvaldur Gáfaði kveður Hvanndalsbræður

Rögnvaldur Gáfaði hefur sagt skilið við hljómsveitina Hvanndalsbræður. Haldin var falleg athöfn á Græna Hattinum dagana 5. og 6. júní í því tilefni. Kemur þetta allt til í góðu og finnst Rögnvaldi komin tími á að hvíla sig á bransanum um stundarsakir. Hvanndalsbræður halda áfram með sama markmiði, að hafa mikla gleði og mikið stuð hvert sem farið er. Hvanndalsbræður þakka Rögnvaldi fyrir allt hans framlag og hefur það verið gríðarlegur heiður að fá að vinna með slíkum heiðursmanni og snillingi.

14. mars 2009 - Við erum ennþá lifandi !

Á meðan hin ólíklegustu bönd hafa skotið upp kollinum í kreppunni hafa Hvanndalsbræður tekið því rólega, notið hinna sönnu lífsgilda og haft það kósí. Eitthvað verður þó um að vera á næstunni og er það helst í formi tónleika sem árlega eru haldnir, má þar helst nefna páskatónleikana á Græna Hattinum sem haldnir verða 8. og 9. apríl n.k. Einnig hefur verið ákveðið að taka tvö gigg í borginni ásamt hinum frábæru Ljótu hálfvitum. Þeir tónleikar verða á Rósenberg 17. og 18. apríl. Það má svo reikna með að hljómsveitin fari að vinna í nýju efni á næstunni og jafnvel skjótist í strúdíó. Lífið er gott í Hvanndal.


3. janúar 2009 - Árið 2008 í hnotskurn


Árið 2008, sjötta starfsár hljómsveitarinnar, var viðburðarríkt líkt og fyrri ár Hvanndalsbræðra. Hljómsveitin kom víða við á tónleikaferðum um landið og skemmti sjálfum sér og gestum gríðarlega vel, aðallega sjálfum sér þó. Stofnað var félagið Hvanndalsbræður sf. til að sjá um rekstur hljómsveitarinnar og er það mat manna eftir eitt ár í rekstri að best sé að lýsa félagið gjaldþrota og skipta upp eignum þess til að standa skil á skuldum sem hljómsveitin á við hina og þessa vínveitingastaði á landinu. Hljómsveitin gaf út sína fimmtu hljómplötu á árinu sem bar nafnið Knúsumstumstund. Platan hefur þegar selst í vel ríflega 2.000 eintökum og enn selst eitt og eitt eintak en gríðarlegur fjöldi manna reyndi þó að skila plötunni í skiptum fyrir silfursafn Páls Óskars. Rekstrarfélagið Hvanndalsbræður sf. sá um útgáfu og dreifingu á hljómplötunni þar sem enginn annar vildi gera það. Það er vani hjá hljómsveitinni að nota áramót til að staldra við, líta um öxl, skoða það sem miður hefur farið og athugað hvernig megi gera enn verr. Nú er sá tími góðir landsmenn, hljómsveitin liggur undir felld og íhugar framtíðina, já nú er vörutalning sálarinnar (ekki hans Jóns Míns), hvað er búið að láta frá sér og hvað er mikið eftir, athuga lagerstöðuna. Annars er bara fínar líkur á því að ný hljómplata líti dagsins ljós á þessu gríðarlega tækifæraríka ári sem 2009 er.

Hvanndalsbræður óska öllum gleðilegs nýs árs með þökk fyrir athyglisvert ár sem nú er liðið. Rock on !

30. nóvember 2008 - Geðtruflaðir jólatónleikar

Það fer lítið fyrir Hvanndalsbræðrum lungað úr desembermánuði, enda þarf að taka laufabrauð og svona. Hinsvegar verður slegið upp svaðalegum jólatónleikum á Græna Hattinum 26. og 27. desember. Þar verður öllu tjaldað til og ekki ólíklegt að þar sjáist hreindýr, jólasveinar, pakkar og aprikósufætur. Við viljum hvetja fólk til að vera mjög drukkið á þessum tónleikum því í þemað í ár er "Fullur um jólin...aftur" ... Sjáumst þar !

10. nóvember 2008 - Aukatónleikar á Græna Hattinum 13.11.08

Vegna fjölda áskoranna frá einni konu á Brekkunni hefur verið ákveðið að taka Unplugged tónleikana aftur fimmtudagskvöldið 13. nóvember n.k. Byrja tónleikarnir kl. 21.00 og er forsala aðgöngumiða í Eymundsson Glerártorgi. Tónleikarnir um síðustu helgi tókust alveg meiriháttar vel og er gríðarleg ánægja innan hljómsveitarinnar hvernig þetta fór alltsaman.

1. nóvember 2008 - Hvanndalsbræður órafmagnaðir

kvöldin 6. 7. og 8. nóvember verða Hvanndalsbræður órafmagnaðir. Um er að ræða þrenna tónleika, fimmtudaginn 6. nóv á Gamla Bauk á Húsavík, föstudaginn 7. nóv og laugardaginn 8. nóv á Græna Hattinum. Þetta er í fyrsta sinn sem hljómsveitin heldur slíka tónleika og því nokkur spenningur í gangi. Lögin breytast að sjálfsögðu talsvert og útgáfur aðrar oft á tíðum. við teljum, þó hlutdrægir séum, að fólk ætti ekki undir neinum kringumstæðum að missa af þessu. Forsala fyrir tónleikana á Græna Hattinum er hafin í Eymundsson Glerártorgi.

11. október 2008 - Hvanndalsbræður yfir væntingum á 3F

Hagnaður Hvanndalsbræðra sf á þriðja ársfjórðungi var með ágætum. Platan Knúsumst um stund seldist vel og ástæða til bjartsýni hjá félaginu á næstu misserum. Það sem kom mest á óvart í uppgjörinu voru þóknunartekjur, en nýliðin fjórðungur var sá tekjuhæsti í þóknunartengdri starfsemi félgasins frá upphafi, sem er gott miðað við að við vitum ekki hvað þóknunartekjur eru. Hreinar vaxtatekjur voru í takti við væntingar, útlán uxu um nokkur prósent en við lánuðum einni konu disk sem hún borgaði svo aldrei. Grunnrekstur Hvanndalsbræðra reyndist sterkur og sýnir að félagið er traust, arðsemi eigin fjár af kjarnastarfsemi (tónleikahaldi) var t.a.m 76% og verið stöðugt frá ársbyrjun 2008. Uppgjör hljómsveitarinnar er í heildina mjög gott á tímum sviptinga á alþjóðamörkuðum. Við ráðleggjum fjárfestum því að skoða félagið vel með tilliti til kaupa á hlutabréfum. Annars styttist allverulega í unplugged tónleika á Húsavík og Akureyri sem verða í byrjun nóvember. Það er ekkert vit í að missa af því, fyrstu þrír gestirnir fá gjaldeyri að eigin vali.

27. september 2008 - Tónleikar framundan

Hvanndalsbræður verða á smá flakki það sem eftir lifir ársins 2008. Framundan eru tónleikar í Sjallanum sem Aflið stendur fyrir þann 2. október. Fram koma m.a. Hvanndalsbræður, Hundur í óskilum, Helgi og hljóðfæraleikararnir, Einar Ágúst, Sniglabandið o.fl o.fl. Kvöldið eftir, föstudaginn 3. okt verður svo stormað á Sauðárkrók og haldnir tónleikar á Mælifelli, dúndrast í Borgarnes eftir það og spilað á Sauðamessu fyrir Gísla Einars og félaga á laugardeginum. Þeirri helgi verður svo lokað á Siglufirði með tónleikum á laugardagskvöldinu 4. okt. Næsti merkilegi viðburður verður svo helgina 6-8 nóv þar sem hljómsveitin slær upp þrennum Unplugged tónleikum, þeim fyrstu sinnar tegundar hjá hljómsveitinni, á Húsavík og Græna Hattinum. Svo eru á döfunni stórhátíðartónleikar á Græna Hattinum um jólin. Þetta verður sennilega í versta falli skemmtileg og sjálfsagt mun eitthvað fleira bætast við en hljómsveitin er einnig nokkuð upptekin við einkaskemmtanir.

25. ágúst 2008 - Hvanndalsbræður á leiðnni til þín ?

Nei varla, en þó er sumrinu senn lokið. Hvanndalsbræður hafa haft hægt um sig í sumar og notið lífsins nokkuð vel. Nú tekur hinsvegar alvaran við og bókanir að hefjast fyrir veturinn. Fylgist því vel með hér á síðunni til að vera nú viss um að missa ekki neinum einustu tónleikum. Pass !!

 

 

 

 

 

 

 

hvanndal.com |